Beint að efninu
Utanríkisráðuneyti Finnlands

Finnsk samtímaljósmyndun - Finnska sendiráðið, Reykjavík : Efst á baugi

FINNSKA SENDIRÁÐIÐ, Reykjavik

Box 1060
IS-121 Reykjavik, Island
Netfang: sanomat.rey@formin.fi
Sími: +354 - 5100 100
Íslenska | Suomi | Svenska
Venjulegt leturStærra letur
 
Fréttir, 6.5.2010

Finnsk samtímaljósmyndun

 

Finnski ljósmyndarinn Harri Pälviranta fjallar um verkin sin og verk listakonunnar Sööru Ekström í Þjóðminjasafni Íslands, Suðurgötu 41, föstudaginn 14. mai kl. 12:15. Fyrirlesturinn er unninn í samstarfi við Félag íslenskra samtímaljósmyndara, hann fer fram á ensku og er öllum opinn. Léttar veitingar í boði Finnska sendiráðsins.

Harri Pälviranta (f. 1971) útskrifaðist með BA gráðu í ljósmyndun frá Turku Arts Academy 2000 og með MA fjölmiðlafræði frá Háskólanum í Turku 2005. Hann vinnur nú að doktorsgráðu í ljósmyndun við University of Art and Design Helsinki. Helstu viðfangsefni Harris eru samfélagslega eðlis svo sem ofbeldi og karlmaðurinn. Fræðilega séð má flokka megin þorra verka hans sem skrásetningu. Með skrásetningu er þá verið að ýja að hugmyndum svo sem fjöbreytileiki eða frásögn á hinu raunverulega sem síðan verður að “endursköpuðum raunveruleika”. Verk hans hafa verið sýnd víða um heim, bæði í einka- og samsýningum.

Saara Ekström

Saara Ekström (f.1965) nam við Northern Arizona University, Flagstaff, Arizona, og Listaháskólan í Turku. Verk hennar hafa verið sýnd  bæði í einka- og samsýningum víða í Evrópu, Japan og Bandaríkjunum. Í verkum sínum endurgerir Saara klassískar kyrralífsmyndir og ,,vanitas” mótífið. Ljósmyndir hennar byggja á táknrænu kyrralífi en draga jafnframt athyglina að þeirri sálrænu togstreitu sem getur myndast á milli hlutarins og rýmisins – tengsl hins tóma og hins fyllta rýmis. Árið 2010 má sjá verk hennar á sýningunni Memory Traces í Ludwig Museum í Koblenz í Þýskaland. Einnig á Saara verk á Carnegie Art Award sýningunni sem mun verða sett upp viðsvegar um heim næsta árið.

 

Hægt verður að sjá verk listamannanna í sýningunni Núna í Norræanu húsinu sem verður opnuð laugardaginn 15. mai.

Prenta siðunaSendu síðuna í tölvupósti

6.5.2010


Prenta siðunaSendu síðuna í tölvupósti
© Finnska sendiráðið, Reykjavík | Upplýsingar um netsetrið | Hafðu samband