Beint að efninu
Utanríkisráðuneyti Finnlands

Finnskir listamenn á listahátíð í Reykjavík - Finnska sendiráðið, Reykjavík : Efst á baugi

FINNSKA SENDIRÁÐIÐ, Reykjavik

Box 1060
IS-121 Reykjavik, Island
Netfang: sanomat.rey@formin.fi
Sími: +354 - 5100 100
Íslenska | Suomi | Svenska
Venjulegt leturStærra letur
 
Fréttir, 10.5.2010

Finnskir listamenn á listahátíð í Reykjavík

Listahátíð í Reykjavík hefst Í ár 12. mai. Á hátíðinni koma m. a. fram Kimmo Pohjonen, harmónikkulistamaður og Sinfóníuhljómsveit Vaasaborgar ásamt CAPUT hópnum og einleikurum.

Sinfjóniuhljómsveit Vassaborgar flytur tónlist eftir íslensk og finnsk tónskáld frá síðustu 100 árum: Sibelius, Markus Fagerudd, Toivo Kula og Jón Nordal. Einnig verður Flautukonsert nr. 2 eftir Atla Heimi Sveinsson frumfluttur á Íslandi. Þrír einleikarar og einn söngvari koma fram á tónleikunum: Bryndís Halla Gylfadóttir, selló, Kolbeinn Bjarnason, flauta, Tatu Kantomaa, harmónikka og Jorma Uotinen "chanson"-söngvari. Stjórnandi er Guðni Franzson. Tónleikarnir verða í Íslenska óperunni 19. mai.

Nánari Upplýsingar á:
Listahátíð í Reykjavík
Sinfóniuhljómsveit Vaasaborgar

 Kimmo Pohjonen er framúrstefnulegur tónlistarmaður og harmónikkulistamaður. Hann kemur fram á tónleikum í NASA 21. mai og bruggar þar magnaðan seið með sömplum, ljósum og slagsmálum við hljóðfærið sem víkka út sjóndeildarhring allra viðstaddra. Hjá Kimmo er húmorinn aldrei langt undan og hann hefur samið, tekið upp tónlist og leikið með ólíkum tónlistarmönnum víða um heim, strengjasveitum, butoh-dönsurum og áströlskum landbúnaðartækjum svo eitthvað sé nefnt og samið tónlist fyrir kvikmyndir, dansverk og leiksýningar. Fyrir nokkrum vikum lék hann með Kronos kvartettinum í Carnegie Hall og hlaut rífandi móttökur áhorfenda og gagnrýnenda. 

Nánari upplýsingar:
Listahátíð í Reykjavík
Heimasiða Kimmo Pohjonen
Myndbönd með Kimmo á tónleikum í Tallin á YouTube
  

 

Prenta siðunaSendu síðuna í tölvupósti

10.5.2010


Prenta siðunaSendu síðuna í tölvupósti
© Finnska sendiráðið, Reykjavík | Upplýsingar um netsetrið | Hafðu samband